![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c9/Moon_Jae-in_%25282017-10-01%2529_cropped.jpg/640px-Moon_Jae-in_%25282017-10-01%2529_cropped.jpg&w=640&q=50)
Moon Jae-in
12. forseti Suður-Kóreu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Moon Jae-in (kóreska: 문재인) (f. 24. janúar 1953) er fyrrverandi forseti Suður-Kóreu.[1] Hann var kjörinn forseti árið 2017 eftir að forvera hans, Park Geun-hye, var vikið úr embætti.
Moon Jae-in 문재인 | |
---|---|
![]() Moon Jae-in árið 2017. | |
Forseti Suður-Kóreu | |
Í embætti 10. maí 2017 – 10. maí 2022 | |
Forsætisráðherra | Hwang Kyo-ahn Yoo Il-ho (starfandi) Lee Nak-yeon Chung Sye-kyun Hong Nam-ki (starfandi) Kim Boo-kyum |
Forveri | Hwang Kyo-ahn (starfandi) |
Eftirmaður | Yoon Suk-yeol |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 24. janúar 1953 (1953-01-24) (71 árs) Geoje, Suður-Kóreu |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkur Kóreu |
Maki | Kim Jung-sook (g. 1981) |
Háskóli | Kyung Hee-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift | ![]() |
Moon er fyrrverandi aðgerðasinni og mannréttindalögfræðingur og hafði verið aðalforsetaritari þáverandi forseta Suður-Kóreu, Roh Moo-hyun.[2] Moon var eitt sinn leiðtogi kóreska Demókrataflokksins og sat á þingi fyrir flokkinn frá 2012 til 2016. Hann var frambjóðandi sameinaða Demókrataflokksins í forsetakosningum ársins 2012 en tapaði þar naumlega fyrir Park Geun-hye.
Sem forseti hefur Moon beitt sér fyrir því að tryggja frið á Kóreuskaga og bæta samskipti við Norður-Kóreu. Árið 2018 varð Moon fyrsti leiðtogi Suður-Kóreumanna í rúman áratug[3] til að funda með leiðtoga Norður-Kóreu þegar hann hitti Kim Jong-un. Á fundi þeirra þann 27. apríl sammældust leiðtogarnir um að stefna á að binda formlegan enda á Kóreustríðið og fjarlægja kjarnorkuvopn af Kóreuskaga.[4]