From Wikipedia, the free encyclopedia
Mjöður er áfengur drykkur sem unninn er úr hunangi og vatni eða jafnvel úr kryddjurtum og áluðu korni (byggi). Mjöður er forn drykkur og hefur líklega fylgt mannkyninu frá örófi alda. Mikið er til af heimildum um tilvist mjaðar frá fornöld, sérstaklega hjá forngrikkjum, en trúlega er drykkurinn mun eldri. Mjöður er hugsanlega eldri en bæði bjór og vín.
Orðið mjöður, og samsverandi orð, kemur fyrir í fjölmörgum málum. Það nær ekki aðeins til flestra indógermanskra mála, heldur ýmissa fleiri. Talið er, að mjöður sé í hópi hinna elstu áfengu drykkja. Menn hugðu, að hann hefði guðdómlegan kraft, sem hlotnaðist þeim, er hans neyttu. Í hinni helgu bók Indverja Rigveda, sem er talin eiga rætur mörg hundruð árum fyrir Kristsburð, eru Krisna og Indra kallaðir mádhaua, þ.e. „hinir hunangbornu", og tákn þeirra var býflugan. Talið er, að mjöður sé eldri drykkur en vín í Miðjarðarhafslöndum. Og það er víðar en á Indlandi, sem mjöður kemur við sögu í goðafræðinni. Í sanskrít kemur fyrir madhu („hunang, sætur drykkur"). Sumir orðsifjafræðingar telja, að orðið hafi borist inn í finnsk-úgrísk mál og einnig í kínversku og japönsku.
Í Snorra-Eddu segir frá Kvasi og því, hvernig skáldamjöðurinn varð til. M.a. stendur þar:
Nokkur afbrigði eru til af miði. Mjöðurinn er þá oft nefndur eftir þeim hráefnum sem notuð er í hann. Hér eru nefnd nokkur afbrigði mjaðar:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.