![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/04/Bundesarchiv_Bild_102-09414%252C_Primo_de_Rivera.jpg/640px-Bundesarchiv_Bild_102-09414%252C_Primo_de_Rivera.jpg&w=640&q=50)
Miguel Primo de Rivera
Einræðisherra á Spáni (1870-1930) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Don Miguel Primo de Rivera y Orbaneja, 2. markgreifi af Estella, 22. greifi af Sobremonte, riddari af Calatrava (8. janúar 1870 – 16. mars 1930) var spænskur aðalsmaður, herforingi og einræðisherra sem forsætisráðherra Spánar á tíma Búrbónaendurreisnarinnar frá 1923 til 1930. Hann tók við völdum í kjölfar stjórnarbyltingar hersins sem studd var af konunginum Alfons 13.[1] Hann felldi stjórnarskrána úr gildi, setti herlög og tók upp stranga ritskoðun. Í valdatíð hans jókst pólitísk spenna í landinu sem á endanum leiddi til Spænsku borgarastyrjaldarinnar 1936.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Spánar, Þjóðhöfðingi ...
Miguel Primo de Rivera | |
---|---|
![]() Primo de Rivera árið 1930. | |
Forsætisráðherra Spánar | |
Í embætti 15. desember 1923 – 28. janúar 1930 | |
Þjóðhöfðingi | Alfons 13. |
Forveri | Manuel García Prieto |
Eftirmaður | Dámaso Berenguer |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 8. janúar 1870 Jerez de la Frontera, Spáni |
Látinn | 16. mars 1930 (60 ára) París, Frakklandi |
Stjórnmálaflokkur | Þjóðernisbandalagið (Unión Patriótica) |
Maki | Casilda Sáenz de Heredia y Suárez de Argudín (g. 1902–1908) |
Börn | José Antonio, Miguel, María del Carmen, María del Pilar, Ángela, Fernando |
Starf | Herforingi, aðalsmaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift | ![]() |
Loka
Sonur hans, José Antonio Primo de Rivera, var einn af stofnendum Spænsku breiðfylkingarinnar (Falange Española) sem náði völdum í kjölfar borgarastyrjaldarinnar.