Menntaskólinn Hraðbraut
Framhaldsskóli á Íslandi (2003-2012) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Menntaskólinn Hraðbraut eða einfaldlega Hraðbraut var íslenskur framhaldsskóli sem var starfandi frá 2003–2012.[5] Nafn skólans hlýst af því að þar var hægt að ljúka stúdentsprófi á tveimur skólaárum í stað fjögurra, en aldrei fyrr hafði opinberlega verið boðið upp á tveggja ára framhaldsskólanámi á Íslandi. Á þessum tveimur skólaárum skiptist námið upp í 15 lotur, þar af 7 lotur fyrra skólaárið og 8 lotur hið síðara, þar sem hver lota er 6 vikur (nema síðasta lotan sem er aðeins 2 vikur). Nemendur gátu valið um náttúrufræðibraut og málabraut, en báðar brautirnar lögðu umtalsverða áherslu á raunvísindi; svo sem stærðfræði og líffræði og var auk þess lögð sterk áhersla á enskukennslu.
Staðreyndir strax Einkunnarorð, Stofnaður ...
| |
Einkunnarorð | „Tveimur árum á undan.“ |
---|---|
Stofnaður | Stofnaður: 1. ágúst 1996 [1] |
Tegund | Einkaskóli |
Skólastjóri | Ólafur Haukur Johnson |
Nemendur | 150 (veturinn 2006–07) |
Nemendafélag | Autobahn |
Staðsetning | Faxafen 10 [3][4] |
Gælunöfn nemenda | Hraðbrautingar, Hraðbrautlingar, Hraðlingar |
Heimasíða | www.hradbraut.is |
Loka