![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/55/Origstud.jpg/640px-Origstud.jpg&w=640&q=50)
Stúdentspróf
námsgráða að loknu námi í framhaldsskóla er veitir rétt til háskólanáms / From Wikipedia, the free encyclopedia
Með stúdentsprófi lýkur því námi á framhaldsskólastigi sem ætlað er að veita undirbúning fyrir nám á háskólastigi. Námstími til stúdentsprófs á Íslandi er þrjú ár eftir lok grunnskóla, áður var námstíminn fjögur ár. Í framhaldsskólum með áfangakerfi geta nemendur stjórnað námshraða.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/55/Origstud.jpg/320px-Origstud.jpg)
Á hinum Norðurlöndunum er stúdentsprófið yfirleitt líka tekið eftir þriggja ára nám eftir skyldunám.
Stúdentspróf veitir rétt til inngöngu í háskóla. Það rekur uppruna sinn til inntökuprófs, Examen artium, sem tekið var við viðkomandi háskóla til 1850 þegar prófin færðust til menntaskólanna.