Martin Luther King, Jr.
bandarískur mannréttindabaráttuleiðtogi (1929-1968) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Martin Luther King, Jr. (15. janúar 1929 – 4. apríl 1968) var frægasti leiðtogi afrískættaðra Bandaríkjamanna og mannréttindabaráttu þeirra á sjötta og sjöunda áratug 20. aldarinnar. Hann var ráðinn af dögum í Memphis. Hann kvæntist Corettu Scott 18. júní 1953 og eignuðust þau fjögur börn. 14. október 1964 varð King yngsti maðurinn til að hljóta friðarverðlaun Nóbels.
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Martin Luther King, Jr. | |
---|---|
Fæddur | 15. janúar 1929 |
Dáinn | 4. apríl 1968 (39 ára) |
Dánarorsök | Myrtur |
Störf | Prestur, aðgerðasinni |
Þekktur fyrir | Forystu sína í mannréttindabaráttu svartra Bandaríkjamanna á miðri 20. öld. |
Trú | Kristni |
Maki | Coretta Scott King (g. 1953) |
Börn | Yolanda Denise King Martin Luther King III Dexter Scott King Bernice Albertine King |
Foreldrar | Martin Luther King Sr. & Alberta Williams King |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels Frelsisorða Bandaríkjaforseta |
Undirskrift | |
Loka