Malaría
From Wikipedia, the free encyclopedia
Malaría eða mýrakalda er smitsjúkdómur sem er útbreiddur í mörgum hitabeltislöndum.[1] Nafnið er komið af ítölsku orðunum „mala aria“, sem þýðir „slæmt loft“ sem aftur skýrist af frumstæðum misskilningi á orsökum sjúkdómssins þar sem menn héldu að slæmt loft orsakaði hann. Íslenska nafnið er síðan leitt af því að moskítóflugur verpa einkum á mýrarsvæðum eða þar sem þær finna kyrrstætt vatnsyfirborð.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/8/8c/P_vivax_trophozoite4.jpg)
Malaría veldur 1 - 3 milljónum dauðsfalla á ári, og eru það aðallega ung börn í Afríku sem látast af völdum hans. Talið er að malaría sé sá sjúkdómur sem flesta hefur lagt af velli af öllum sjúkdómum.
Orsök sjúkdómsins eru einfruma sníkjudýr af ættkvíslinni Plasmodium, ekki vírusar eða bakteríur. Snýkjudýr þessi berast á milli manna, með stungum kvenkyns moskítófluga. Karlkyns moskítóflugur nærast ekki á blóði úr mannfólki. Kvenkyns moskítóflugur fá úr blóði efni sem þær fá ekki auðveldlega annarsstaðar sem þær nota til framleiðslu frjóverpis (eggja).
Talið er að snýkjudýrið hafi komið fram á sjónvarsviðið fyrir 50-100 000 árum en fyrst náð verulegri útbreiðslu fyrir um 10 þúsund árum. Sníkjudýrin sýkja rauð blóðkorn í hýsli sínum þar sem kynlaus fjölgun á sér stað. Blóðkornin springa, snýkjudýrin losna út í blóðrásina og sýkja önnur rauð blóðkorn.[2] Þetta veldur sótthita og blóðleysi. Í alvarlegum tilvikum getur sjúklingurinn fallið í dá og jafnvel látist í kjölfarið.