macOS
stýrikerfi frá Apple / From Wikipedia, the free encyclopedia
macOS (upphaflega Mac OS X, áður stytt í OS X) er stýrikerfi þróað og markaðsett af Apple síðan 2001. Það er þónokkuð á eftir Windows í markaðshlutdeild, en á undan Linux, þar með talið ChromeOS.
macOS | |
Hönnuður | Apple |
---|---|
Nýjasta útgáfa | macOS 14 Sonoma (frá 2023) |
Notkun | Stýrikerfi |
Vefsíða | apple.com/macOS |
macOS er annað Unix-lega stýrikerfi Apple Inc. Það fyrsta var A/UX kerfið sem Apple þróaði snemma á tíunda áratugnum til að keyra á netþjónum sem fyrirtækið framleiddi, það átti líka hlut í þróun MkLinux en það kerfi keyrði aldrei á vélum seldum frá fyrirtækinu.
Nýjustu útgáfur macOS keyra eingöngu á 64-bita örgjörvum, og hefur Apple tekið út stuðning fyrir 32-bita forrit. Upphaflega útgáfan af OS X, keyrði eingöngu á (32-bita) PowerPC örgjörvum, en síðar var skipt yfir í að nota Intel örgjörva, sams konar og notaði höfðu verið á Windows, og frá þeim tíma hefur líka verið hægt að keyra Windows á tölvunum sem macOS er fyrir. Síðan hefur hins vegar verið skipt algerlega yfir í ARM-örgjörva, og Apple hannar sitt eigið afbrigði af þeim, sú lína er nefnd Apple Silicon. Efir að það gerðist þá hefur macOS stuðning við iPad forrit (því ARM örgjörvinn er samhæfður iPad/iPhone) sem eru mun fleiri en hefbundin macOS forrit. Þau forrit eru reyndar öll gerð fyrir mús og lyklaborð, en iPad forrit ekki fyrir mús (heldur snertingu með puttum). iPad styður í seinni tíð líka penna, sem heldur er þóþjáll nema á lárétum skjá, en mús kemur að einhverju leiti í staðinn. Það er möguleiki á að þessi forrit séu ekki alveg eins vel aðlöguð, en flest, eða öll, eiga að virka. Þar sem hönnun forrita fer mikið efir viðmóti er óvíst að öll ("iPad") forritin séu þau bestu sem hægt er að gera fyrir macOS stýrikerfistölvur. Það sem getur hjálpað er að hægt er að nota rödd í einhverjum forritum, stuðningur við rödd getur verið sams konar á milli tækja. Annað er að forrit geta verið miðuð við minnst öflugasta fáanlega örgjörva (fyrir mesta markaðshlutdeild), eða hugsanlega mest öfluga t.d. á iPad, en þar sem iPad notast við rafhlöðu getur sá örgjörvi aldrei orðið eins öflugur. Hægt er að gera sum forrit, t.d. leiki, sem geta nýtt sér meira öfluga örgjörva en iPad bíður upp á, á macOS, en samt verið "iPad" forrit í einhverjum skilningu, þ.e. aðlagast minn öflugum ef keyrt er á iPad, t.d. þá með minna fínni grafík. En það krefst samt að betri grafíkin sé hönnuð og ef macOS hefur (áfram) mun minni markaðshlutdeild má vera að það yrði aldrei gert.
macOS sjálft er skrifað í forritunarmálunum C, C++ (t.d. kjarninn), Objective-C, og að auki í seinni útgáfum í nýja máli Apple, Swift. Það er hægt að skrifa forrit fyrir macOS (og iOS) í alls konar málum, ekki bara þessum, en mjög algengt var að nota Objective-C, en ekki lengur, og nú er Swift mikið notað.
Þegar stýrikerfið kom á markað árið 2001 var Mac OS X Server (frá 1999) þegar í nokkurri notkun (sem er ekki lengur selt, sölu hætt 2022, svo kom aldrei út fyrir ARM örgjörva).