Loftslag
From Wikipedia, the free encyclopedia
Loftslag eða veðurfar eru þeir eiginleikar veðurs sem eru einkennandi fyrir lengri tímabil, og er þá oft miðað við 30 ár. Nákvæmari skilgreining tekur til tölfræðilegra eiginleika veðurs, svo sem breytinga á milli daga og ára. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar skilgreinir loftslag á eftirfarandi hátt:
- Loftslag í þröngum skilningi er yfirleitt skilgreint sem „meðaltalsveður“, eða á nákvæmari máta sem tölfræðileg lýsing (sem tekur til meðaltals og breytileika) á viðeigandi stærðum og eiginleikum yfir lengra tímabil, sem getur varað frá mánuðum til þúsunda eða milljóna ára. Hefðbundið viðmiðunartímabil er 30 ár, eins og það er skilgreint af stofnuninni World Meteorological Organization. Viðeigandi eiginleikar eru oftast yfirborðshitastig, úrkoma og vindur. Loftslag í víðari skilningi er, auk tölfræðilegrar lýsingar, almennt ástand veðurfarskerfisins.[1]
Veður |
Árstíðir |
Tempraða beltið |
Vor • Sumar • Haust • Vetur |
Hitabeltið |
Þurrkatími • Regntími |
Óveður |
Stormur • Fellibylur Skýstrokkur • Öskubylur |
Úrkoma |
Þoka • Súld • Rigning Slydda • Haglél • Snjókoma |
Viðfangsefni |
Veðurfræði • Veðurspá Loftslag • Loftmengun Hnattræn hlýnun • Ósonlagið Veðurhvolfið |