Likud
Ísraelskur stjórnmálaflokkur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Likud (á hebresku: הליכוד, umritað HaLikud, ísl. Samstæðan eða Bandalagið) er ísraelsk stjórnmálahreyfing, sem í upphafi var kennd við miðjustefnu með skýrum skírskotunum til hægristefnu.[13]
Staðreyndir strax Likud-bandalagið הַלִּיכּוּד ...
Likud-bandalagið הַלִּיכּוּד | |
---|---|
![]() | |
Fylgi | ![]() |
Formaður | Benjamín Netanjahú (hebreska: בִּנְיָמִין נְתַנְיָהוּ) |
Stofnár | 1973 (bandalag), 1988 (sameinaður flokkur) |
Samruni eftirtalinna hreyfinga | גח"ל (Gachal), המרכז החופשי (HaMerkas HaChofschi), התנועה למען ארץ ישראל השלמה (HHaTenu'a Lema'an Eretz Yisrael HaSheleima) |
Höfuðstöðvar | King George 38, 6156101 |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Frjálslyndisstefna, Þjóðernisfrjálslyndisstefna[1][2][3][4] Íhaldsstefna[5] Þjóðernisíhaldsstefna[6][7][8] Efnahagsfrelsi Zíonismi[5] Hægrilýðhyggja[9] Sögulega: Zíonísk endurskoðunarstefna[10][11] Frjálslyndisíhaldshyggja[12] |
Einkennislitur | Blár |
Sæti á Knesset | ![]() |
Listabókstafur | מחל/MXL |
Vefsíða | www.likud.org.il |
Loka
Meðlimur Likud-bandalagsins nefnist í daglegu tali likudnik (לִכּוּדְנִיק) og er það heiti er myndað með viðskeytinu -nik, en það er upprunalega fengið að láni úr slavneskum málum. Það er löng hefð fyrir viðskeytinu í jiddískum orðasamsetningum og fyrir áhrif þeirrar tungu, sem Askhenazi gyðingar hafa verið mæltir á síðan á 9. öld, á þróun nútímahebresku hefur slavneska viðskeytið -nik öðlast mikilvægan sess í hebresku — aðalþjóðtungu Ísraelsmanna.[14]