![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/59/Lafond_Sappho_and_Homer.jpg/640px-Lafond_Sappho_and_Homer.jpg&w=640&q=50)
Samkynhneigð
From Wikipedia, the free encyclopedia
Samkynhneigð nefnist það þegar einstaklingur laðast tilfinningalega og/eða kynferðislega aðallega að einstaklingum af sama kyni og hann sjálfur. Samkynhneigðir karlmenn eru oft kallaðir hommar, samkynhneigðar konur lesbíur.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/59/Lafond_Sappho_and_Homer.jpg/320px-Lafond_Sappho_and_Homer.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/da/%C3%89douard-Henri_Avril_%2819%29.jpg/640px-%C3%89douard-Henri_Avril_%2819%29.jpg)
Samkynhneigð er ásamt tvíkynhneigð og gagnkynhneigð ein af þremur helstu flokkum á kynhneigðarskalanum. Ekki er vitað hvað veldur mismunandi kynhneigð í mönnum, en talið er að það orsakist af samspili erfðaþátta, hormóna, og umhverfisþátta og að fólk hafi ekki val um það.[1][2][3] Vísbendingar eru um að umhverfi í móðurkviði ásamt erfðaþáttum geti spilað inn í.[4][5] Vísbendingar benda ekki til þess að kynhneigð ráðist af uppeldi.[6] Gagnkynhneigð er algengasta kynhneigðin, en mismunandi kynhneigðir eru nú taldar vera eðlilegur breytileiki innan margra dýrategunda.[7][8] Sálfræðimeðferðir og önnur inngrip hafa ekki sýnt að þau geti haft áhrif á kynhneigð.[9]
Í kringum 3,5% af fullorðnum skilgreina sig sem sam- eða tvíkynhneigð samkvæmt könnun sem gerð var í Bandaríkjunum 2011.[10][11] Á milli 2% og 11% af fullorðnum hafa átt í einhverju kynferðislegu sambandi við einstakling af sama kyni.[12][13][14][15][16][17][18][19][20][21] Í breskri könnun frá 2010 sögðust 95% Breta skilgreina sig sem gagnkynhneigða, 1,5% sem sam- eða tvíkynhneigða, og 3,5% voru óvissir eða svöruðu ekki spurningunni.[22][23]