Leoníd Brezhnev
Aðalritari sovéska kommúnistaflokksins (1906–1982) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Leoníd Íljítsj Brezhnev (kyrillískt letur: Леонид Ильич Брежнев; 19. desember 1906 – 10. nóvember 1982) var sovéskur stjórnmálamaður og aðalritari sovéska kommúnistaflokksins. Hann sat við stjórn Sovétríkjanna í átján ár, næstlengst allra Sovétleiðtoga á eftir Jósef Stalín. Á valdatíð hans jukust áhrif Sovétríkjanna á alþjóðavettvangi verulega, meðal annars vegna aukinna útgjalda til sovéska hersins. Hins vegar hófst efnahagsleg og samfélagsleg stöðnun á valdatíð hans.
Staðreyndir strax Aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, Forveri ...
Leoníd Brezhnev Леонид Брежнев | |
---|---|
Aðalritari sovéska kommúnistaflokksins | |
Í embætti 14. október 1964 – 10. nóvember 1982 | |
Forveri | Níkíta Khrústsjov |
Eftirmaður | Konstantín Tsjernenko |
Forseti forsætisnefndar Æðstaráðs Sovétríkjanna | |
Í embætti 16. júní 1977 – 10. nóvember 1982 | |
Forveri | Níkolaj Podgornyj |
Eftirmaður | Júríj Andropov |
Í embætti 7. maí 1960 – 15. júlí 1964 | |
Forveri | Klíment Voroshílov |
Eftirmaður | Anastas Míkojan |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1. janúar 1907 Kamenskoje, Úkraínu, rússneska keisaradæminu |
Látinn | 10. nóvember 1982 (75 ára) Moskvu, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna |
Maki | Viktoría Brezhneva |
Börn | Galina Brezhneva Júríj Brezhnev |
Starf | Verkfræðingur, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka