![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/86/Lauri_Kristian_Relander.jpg/640px-Lauri_Kristian_Relander.jpg&w=640&q=50)
Lauri Kristian Relander
2. forseti Finnlands (1883–1942) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lauri Kristian Relander (31. maí 1883 – 9. febrúar 1942) var finnskur stjórnmálamaður. Hann var annar forseti Finnlands, frá 1925 til 1931. Hann var búfræðingur að mennt og meðlimur í finnska Bændabandalaginu, sem síðar varð finnski Miðflokkurinn.
Lauri Kristian Relander | |
---|---|
![]() Relander árið 1928. | |
Forseti Finnlands | |
Í embætti 2. mars 1925 – 2. mars 1931 | |
Forsætisráðherra | Lauri Ingman Antti Tulenheimo Kyösti Kallio Väinö Tanner Juho Sunila Oskari Mantere Pehr Evind Svinhufvud |
Forveri | Kaarlo Juho Ståhlberg |
Eftirmaður | Pehr Evind Svinhufvud |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 31. maí 1883 Kurkijoki, Stórfurstadæminu Finnlandi, rússneska keisaradæminu (nú Karelíu, Rússlandi) |
Látinn | 9. febrúar 1942 (58 ára) Helsinki, Finnlandi |
Þjóðerni | Finnskur |
Stjórnmálaflokkur | Bændabandalagið |
Maki | Signe Relander |
Relander er gjarnan talinn óþekktasti forseti í sögu Finnlands, þar sem hann var talinn litlaus og vanmáttugur forseti sem rak ekki skýra pólitíska stefnu á tíma mikillar þjóðfélagssundrungar í landinu.[1] Finnland viðhélt einangrunarstefnu í utanríkismálum á kjörtímabili Relanders en hann lagði hins vegar sitt af mörkum við að koma fram í umboði Finnlands erlendis og stofna til nánari samskipta við nágrannaríkin, þar á meðal hin Norðurlöndin.[1] Í forsetatíð sinni krafðist Relander þess að vinstrisinnar samþykktu reglur lýðræðis í Finnlandi, að hægrisinnar sættu sig við stjórnarfyrirkomulag lýðveldisins og að þjóðernissinnar kæmu sér saman um finnska tungumálastefnu.[1]