Lanzhou Zhongchuan-alþjóðaflugvöllurinn
alþjóðalugvöllur sem þjónar Lanzhou, Gansu, Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðaflugvöllur Lanzhou Zhongchuan (IATA: LHW, ICAO: ZLLL) (kínverska: 兰州中川国际机场; rómönskun: Lánzhōu Zhōngchuān Guójì Jīchǎng) er flughöfn Lanzhou höfuðborgar Gansu héraðs í Alþýðulýðveldinu Kína.
![Mynd sem sýnir farþegamiðstöð Lanzhou Zhongchuan alþjóðaflugvallarins í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d7/Lanzhou_Airport_01.jpg/640px-Lanzhou_Airport_01.jpg)
Flugvöllurinn er staðsettur um 67 kílómetra norður af miðborg Lanzhou í bænum Lanzhou Zhongchuan, sem gefur honum nafn sitt. Hann hefur tvær farþegamiðstöðvar Það eru átta brottfararhlið í þeirri fyrri en í þeirri seinni sem er nýrri og 61.000 fermetra, eru níu brottfararhlið. Þetta er meginflughöfn héraðsins Gansu.
Lanzhou Zhongchuan -flugvöllur, var opnaður árið 1970. Árið 2018 þjónaði flugvöllurinn um 13.9 milljónum farþega og um hann fóru 61.000 tonn af farmi.