![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0b/Cat_poster_1.jpg/640px-Cat_poster_1.jpg&w=640&q=50)
Köttur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Köttur, húsköttur eða heimilisköttur (fræðiheiti: Felis silvestris catus) er undirtegund villikatta (fræðiheiti: Felis silvestris) sem er tegund lítilla rándýra af ætt kattardýra. Kettir eru rökkurdýr og kjötætur sem hafa lifað sem húsdýr í mörg þúsund ár.[1] Forn-Egyptar hófu að nota ketti til að halda músum og öðrum nagdýrum frá kornbirgðum. Kettir eru eitt vinsælasta gæludýr heims.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/5a/Scheme_cat_anatomy.svg/640px-Scheme_cat_anatomy.svg.png)
Köttur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Ýmis kattaafbrigði. | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Þrínefni | ||||||||||||||||
Felis silvestris catus (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||||
Kettir eru mjög hæf rándýr og vitað er til þess að þau veiði yfir 1.000 dýrategundir sér til matar. Hægt er að kenna köttum að hlýða einföldum skipunum og þeir hafa getu til þess að læra á einföld tæki eins og hurðarhúna. Kettir notast við fjöldann allan af dýratáknum í samskiptum við ketti og önnur dýr, þeir mjálma, mala, hvæsa, urra og gagga.[2] Rannsóknir benda til þess að samskipti á milli katta og manna séu töluvert þróuð.[3] Kettir eru einnig ræktaðir og látnir keppa á kattasýningum þar sem veitt eru verðlaun fyrir fallega og hæfileikaríka ketti.