Kvenréttindi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kvenréttindi eru þau efnahagslegu og stjórnmálalegu réttindi sem konur og stelpur í mjög margvíslegum aðstæðum hafa gert tilkall til og gera enn í dag. Baráttan fyrir kvenréttindum er til komin vegna margvíslegrar, sögulegrar og hefðbundinnar mismununar körlum í vil á kostnað kvenna.
Þau réttindi sem konur hafa gert tilkall til til jafns við karlmenn eru meðal annars kosningaréttur í lýðræðisríkjum, réttur til jafnra launa kynjanna fyrir sömu störf, til sjálfræðis, fjárræðis, til þess að ganga í her, gegna opinberum embættum, o.fl.
Jafnrétti er víðast hvar talsvert mikið á Vesturlöndum, og þá sérstaklega í Skandinavíu. Í einveldisríkjum eins og t.d. Sádi-Arabíu eru réttindi kvenna af skornum skammti, þar mega þær hvorki aka farartæki né heldur kjósa til ráðgefandi þings (a. Majlis as-Shura).