Konunglega sænska vísindaakademían – (sænska: Kungliga Vetenskapsakademien (KVA)) – er ein af mörgum konunglegum akademíum í Svíþjóð. Akademían er sjálfstætt vísindafélag, sem hefur að markmiði að efla vísindin, einkum náttúruvísindi og stærðfræði, og auka áhrif þeirra í samfélaginu. Hún hefur aðsetur í Stokkhólmi.
að vera þverfaglegt samfélag vísindamanna, þar sem þeir geta kynnst og skipst á skoðunum
að styðja og styrkja unga vísindamenn og bæta rannsóknaraðstöðu þeirra
að verðlauna framúrskarandi verk í vísindum
að greiða fyrir alþjóðlegum samskiptum og samstarfi vísindamanna
að vera málsvari vísinda í samfélaginu og hafa áhrif á stefnumörkun stjórnvalda í þeim efnum
að ýta undir áhuga á stærðfræði og náttúruvísindum í skólum
að miðla vísindalegri þekkingu til fræðimanna og almennings
Í Konunglegu sænsku vísindaakademíunni (KVA) er fjöldi sænskra félagsmanna undir 65 ára aldri takmarkaður við 175, og erlendra við 175. Alls eru um 400 Svíar í akademíunni, með eftirlaunaþegum.
Sem hliðstæða á sviði hugvísinda var árið 1753 stofnuð Kungliga Vitterhets Historie och Antikvitets Akademien (Konunglega bókmennta, sögu og fornfræðiakademían).
Fagnefndir og Nóbels-nefndir á vegum vísindaakademíunnar hafa m.a. það hlutverk að útdeila alþjóðlegum verðlaunum. Hefur Svíum tekist að skapa þeim þann ramma, bæði hvað snertir virðuleika og faglega innistæðu, að þau njóta mikillar virðingar um allan heim. Meðal þeirra þekktustu eru:
Ingvar Lindqvist verðlaunin fyrir kennslu í eðlisfræði, efnafræði, líffræði og stærðfræði.
Í Svíþjóð er fjöldi af akademíum og vísindafélögum, sem margar hverjar takmarka sig við ákveðið áhugasvið, og þar sem aðild er háð vali eða mati á viðkomandi einstaklingi. Nokkrar akademíur vinna að því að efla menningarlíf í ákveðnum landshlutum.
Sænska akademían (Svenska Akademien), vinnur að því að styrkja stöðu sænsks máls og bókmennta, og útdeilir einnig Nóbelsverðlaunum í bókmenntum.
Konunglegar akademíur og vísindafélög
Kungliga Vitterhets Historie och Antikvitets Akademien, stofnuð 1753, til að efla rannsóknir á sviði hugvísinda, félagsvísinda, guðfræði og lögfræði, ásamt því að standa vörð um menningarminjar.
Kungliga Akademien för de fria konsterna, eða Konstakademien (Konunglega sænska listakademían), vinnur að því að efla listastarfsemi í Svíþjóð.
Kungliga Musikaliska Akademien (Konunglega sænska tónlistarakademían), vinnur að því að efla tónlistarstarfsemi, einkum með stuðningi við tónlistarmenntun, tónvísindi og listræna þróun innan greinarinnar.
Kungliga Gustav Adolfs Akademien för svensk folkkultur í Uppsölum, til að efla rannsóknir og útgáfu rita um sænska alþýðumenningu.
Kungliga Humanistiska Vetenskapssamfundet i Uppsala
Kungliga Vetenskapssamhället i Uppsala
Kungliga Vetenskaps-Societeten i Uppsala
Kungliga Vetenskaps- och Vitterhetssamhället i Göteborg
Kungliga Ingenjörsvetenskapsakademien (IVA), til að efla verkfræði-, tækni- og viðskiptagreinar.
Kungliga Krigsvetenskapsakademien, KKrVA
Kungliga Skogs- och Lantbruksakademien, vinnur að því að efla landbúnað, skógrækt og timburiðnað, með því að nýta rannsóknir og reynslu á því sviði.