Keane
From Wikipedia, the free encyclopedia
Keane (borið fram [/ˈkiːn/]) er bresk píanórokkhljómsveit frá Battle í Austur-Sussex á Englandi. Hún var stofnuð árið 1994 sem The Lotus Eaters en árið 1997 var núverandi nafn tekið upp. Sveitina skipa þeir Tim-Rice Oxley (lagahöfundur, bassaleikari, píanóleikari), Tom Chaplin (söngvari) og Richard Hughes (trommari). Gítarleikarinn Dominic Scott yfirgaf hjómsveitina árið 2001. Keane er fræg fyrir að nota píanó sem aðal hljóðfæri í stað gítars og hefur þannig náð að skapa sér ákveðna sérstöðu gagnvart öðrum rokkhljómsveitum.[1] Árið 2006 byrjuðu þeir að nota brenglað píanóhljóð og nokkrar gerðir hljóðgervla.[2][3] Undanfarið hafa þeir notað hljóðfæri eins og banjó, fiðlur, saxófóna og kassagítar á ný.
Keane | |
---|---|
Upplýsingar | |
Uppruni | Austur-Sussex, England |
Ár | 1995 – í dag |
Stefnur | Píanórokk |
Útgefandi | Island Interscope Universal Music Group Fierce Panda Zoomorphic |
Meðlimir | Tim Rice-Oxley Tom Chaplin Richard Hughes |
Fyrri meðlimir | Dominic Scott |
Vefsíða | Keanemusic |
Fyrstu tvær breiðskífur hljómsveitarinnar, Hopes and Fears og Under the Iron Sea, nutu mikilla vinsælda á Bretlandi og seldust mjög vel um allan heim. Fyrsta platan þeirra vann nokkur verðlaun og var söluhæsta plata Bretlands árið 2004. Önnur platan seldist í 222.000 eintökum fyrstu vikuna í júní 2006.[4] Í maí 2008 kusu lesendur tímaritsins Q bæði plötuna Hopes and Fears (#13) og Under the Iron Sea (#8) á meðal þeirra bestu í sögu Bretlands. Keane, Bítlarnir, Oasis og Radiohead voru einu hljómsveitirnar sem höfðu tvær eða fleiri plötur í tuttugu efstu sætunum.[5]