Karlamagnús
konungur Franka (742-814) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Karlamagnús (Karl I eða Karl mikli; franska: Charlemagne, þýska: Karl der Große, latína: Carolus magnus) (um 2. apríl 742 – 28. janúar 814 í Aachen) var konungur frankaríkisins mikla sem spannaði um nær gervalla Vestur-Evrópu. Hann var krýndur keisari árið 800 og var einn mesti höfðingi í Evrópu á miðöldum. Karlamagnús er dýrlingur kaþólsku kirkjunnar að áeggjan Friðriks Barbarossa keisara, sem einnig veitti honum nafnbótina ‚faðir Evrópu‘ (Pater Europae). Eftir honum er ætt Karlunga nefnd.