Kappreiðar er hestamennsku íþrótt tveggja eða fleiri hesta sem eru riðnir af einum eða fleiri knöpum (eða stundum án knapa) yfir ákveðna fjarlægð í keppni. Það er ein af elstu íþróttum heims, þar sem grunnforsenda þess að finna út hver af tveimur eða fleiri hestum sé fljótari á ákveðnri braut eða yfir ákveðna fjarlægð, hefur haldist óbreytt síðan á klassískum fornöldum.[1]

Kappreiðar eru breytilegar og margar þjóðir hafa þróað þeirra eigin hefðir í íþróttinni. Meðal útfærslna er að takmarka kappreiðarnar við ákveðnar tegundir, fara yfir hindranir, mismunandi vegalengdir, mismunandi yfirborð brautar og mismunandi gangtegundir. Í sumum kappreiðum fá hestarnir mismunandi þyngdir til að sýna mun í getu, það ferli kallast forgjöf.[2]

Þó að hestar séu stundum riðnir í íþróttaskyni, þá er stór hluti af áhuga á íþróttinni og fjármunum hennar í fjárhættuspilum sem tengjast þeim.[3] Sú starfsemi aflaði 2019 á heimsvísu 115 milljarða bandaríkjadala.[4]

Saga

Kappreiðar hafa langa og sérstaka sögu og hafa verið iðkaðar í menningarsamfélögum um allan heim frá fornu fari. Fornleifa skrár gefa til kynna að kappreiðar áttu sér stað í Grikklandi til forna, Róm til forna, Babýlon, Sýrlandi og Egyptalandi. Þær hafa einnig sess í goðsögum, eins og keppni hesta guðsins Óðins og risans Hrungnir í norrænu goðasögunum.

Heimildir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.