Kúbudeilan
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kúbudeilan var hápunktur Kalda stríðsins. Deilan var á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Ástæðan var kjarnorkuvígbúnaðarkapphlaupið milli þessara tveggja stórríkja. Bæði ríkin vildu vera sem best undirbúin fyrir utanaðkomandi árásum og varð Kúba miðpunktur deilunnar vegna staðsetningar sinnar. Sovétmenn áttu auðvelt með að koma upp kjarnorkuskotpöllum þar og ógnuðu þannig öryggi Bandaríkjanna. Aldrei áður hafði heimurinn verið jafn nálægt kjarnorkustríði og þá. Bæði ríkin töldu sig hafa unnið deiluna og sambúð þessara tveggja stórríkja batnaði í kjölfarið. Árið 1963 ákváðu kjarnorkuveldin þrjú, Bandaríkin, Sovétríkin og Bretland, að hætta öllum tilraunum með kjarnorkuvopn ofanjarðar.