Kárahnjúkavirkjun
Vatnsaflsvirkjun á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kárahnjúkavirkjun öðru nafni Fljótsdalsstöð er 690 MW vatnsaflsvirkjun á hálendi Íslands norðan Vatnajökuls.
Staðreyndir strax Byggingarár, Afl ...
Kárahnjúkavirkjun (Fljótsdalsstöð) | |
Kárahnjúkastífla 22.janúar 2007 | |
Byggingarár | 2003-2007 |
---|---|
Afl | 690 MW |
Virkjað vatnsfall | Jökulsá á Dal, Jökulsá í Fljótsdal og fleiri |
Fallhæð | 599 m |
Framleiðslugeta | 4.600 gígavattsstundir/ári |
Meðalrennsli | 110 m³/sek |
Fjöldi hverfla | 6 vélasamstæður |
Tegund hverfla | Francis á lóðréttum ási |
Aðrennslisgöng | 40 km löng |
Frárennslisgöng | 1,3 km út í Jökulsá á Fljótsdal |
Eigandi | Landsvirkjun |
Loka
Virkjunin sér álveri Alcoa í Reyðarfirði fyrir raforku. Virkjaðar eru jökulár Vatnajökuls: Jökulsá á Dal (Jökulsá á Brú), Jökulsá í Fljótsdal, Kelduá og þrjár þverár hennar. Mannvirkið sem slíkt hefur verið nefnt stærsta framkvæmd Íslandssögunnar. Undirbúningur að verkinu hófst árið 1999, framkvæmdir hófust 2002 og loks var virkjunin formlega gangsett 30. nóvember 2007.[1][2]