Jökulsá á Fjöllum
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jökulsá á Fjöllum er önnur lengsta á Íslands, 206 km að lengd. Eins og nafnið gefur til kynna er hún jökulá sem rennur frá Vatnajökli, nánar tiltekið Dyngjujökli og Brúarjökli. Fossarnir Selfoss, Dettifoss, Hafragilsfoss og Réttarfoss (de) eru í ánni. Nálægt eru þjóðgarðurinn Jökulsárgljúfur og Ásbyrgi.
Staðreyndir strax Staðsetning, Land ...
Jökulsá á Fjöllum | |
---|---|
Staðsetning | |
Land | Ísland |
Einkenni | |
Uppspretta | Vatnajökull |
Hnit | 64°39′53″N 16°51′17″V |
Árós | |
• staðsetning | Öxarfjörður |
Lengd | 206 km |
Vatnasvið | 7.380 km² |
Rennsli | |
• miðlungs | 183 m³/s |
breyta upplýsingum |
Loka
Árfarvegur Jökulsár á Fjöllum er mótaður af miklum jökulhlaupum sem flest tengjast líklega eldgosum í Vatnajökli. Áin rennur austan við Herðubreiðarlindir og markar austurjaðar Ódáðahrauns, norður eftir Kelduhverfi. Sandurinn sem áin hefur borið með hefur myndað sandana og flatlendið í Öxarfirði og Kelduhverfi.