![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/77/Hornstrandir_og_J%25C3%25B6kulfir%25C3%25B0ir.png/640px-Hornstrandir_og_J%25C3%25B6kulfir%25C3%25B0ir.png&w=640&q=50)
Jökulfirðir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jökulfirðir eru fimm firðir, sem ganga inn úr Ísafjarðardjúpi norðanverðu. Þeir eru:
- Leirufjörður; syðstur
- Hesteyrarfjörður; vestastur
- Hrafnsfjörður; austastur
- Veiðileysufjörður og Lónafjörður eru milli Hesteyrarfjarðar og Hrafnsfjarðar.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/77/Hornstrandir_og_J%C3%B6kulfir%C3%B0ir.png/640px-Hornstrandir_og_J%C3%B6kulfir%C3%B0ir.png)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/44/Drangaj%C3%B6kull_from_J%C3%B6kulfir%C3%B0ir.jpg/640px-Drangaj%C3%B6kull_from_J%C3%B6kulfir%C3%B0ir.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/5e/J%C3%B6kulfir%C3%B0ir_2017_2.jpg/640px-J%C3%B6kulfir%C3%B0ir_2017_2.jpg)
Allir eru firðirnir utan Leirufjarðar á nyrðri hlið Jökuldjúpsins. Firðirnir eru allir óbyggðir í dag en seinustu ábúendur á svæðinu yfirgáfu það milli 1960 og 1970. Í dag er sumarábúð á nokkrum stöðum í Jökulfjörðum. Til að mynda er sumarábúð og þjónusta við ferðamenn í Grunnuvík og á Hesteyri.
Til að komast í Jökulfirði er hægt að fara með bát eða fara gangandi yfir Snæfjallaheiði eða Dalsheiði. Enginn vegur lá í Jökulfirði framan af en árið 2005 kom upp umdeilt mál þar sem eigandi Leiru í Leirufirði ruddi slóða yfir Dalsheiði.