![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/15/Westfjords_Region%252C_Iceland_-_panoramio_%252837%2529.jpg/640px-Westfjords_Region%252C_Iceland_-_panoramio_%252837%2529.jpg&w=640&q=50)
Hesteyri
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hesteyri er eyðiþorp við Hesteyrarfjörð í Jökulfjörðum á norðanverðum Vestfjörðum. Þorpið fór í eyði rétt eftir miðja 20. öld. Hesteyrarjörðin, sem þorpið stendur á, á landamerki með jörðinni Sléttu í Sléttuhreppi yst í Hesteyrarfirði. Jörðin nær frá landamerkjum við Sléttu fyrir Hesteyrarfjörð og fremst á Lásfjall.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/15/Westfjords_Region%2C_Iceland_-_panoramio_%2837%29.jpg/640px-Westfjords_Region%2C_Iceland_-_panoramio_%2837%29.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/68/Hesteyrarfj%C3%B6r%C3%B0ur.jpg/640px-Hesteyrarfj%C3%B6r%C3%B0ur.jpg)
Á Hesteyri eru nú 9 hús sem notuð eru sem sumarhús. Flest þessara húsa eru frá fyrri hluta síðustu aldar en nokkur voru reist fyrir aldamótin 1900. Í húsi, sem gengur undir nafninu Búðin, var rekin verslun en Hesteyri varð löggiltur verslunarstaður 1881. Þegar flest var bjuggu rúmlega 80 manns á Hesteyri. Þar var læknisbústaður en oft gekk illa að fá lækni þangað.
Innan við Hesteyri rennur Hesteyrará sem oft reyndist farartálmi þeim sem ætluðu norður í víkur (Kjaransvík, Hlöðuvík, Hornvík). Sumarið 2004 var áin brúuð. Rúmum tveimur kílómetrum innan við þorpið á Stekkeyri stóð áður hvalstöð, reist 1894, sem síðar varð síldarbræðsla. Stöðin var reist af Norðmönnum en komst síðan í eigu Íslendinga. Stöðin var starfrækt fram í seinna stríð. Í dag er orðið lítið eftir af stöðinni nema rústir og strompur mikill sem enn stendur.