From Wikipedia, the free encyclopedia
Jérôme Bonaparte[1] (15. nóvember 1784 – 24. júní 1860) var yngsti bróðir Napóleons Bónaparte. Hann var konungur Vestfalíu (undir nafninu Hieronymus Napoleon) frá 1807 til 1813.
| ||||
Jérôme Bonaparte | ||||
Ríkisár | 8. júlí 1807 – 26. október 1813 | |||
Skírnarnafn | Girolamo Napoleone de Buonaparte | |||
Fæddur | 15. nóvember 1784 | |||
Ajaccio, Korsíku, Frakklandi | ||||
Dáinn | 24. júní 1860 (75 ára) | |||
Vilgénis, Seine-et-Oise, Frakklandi | ||||
Gröf | Invalides-hvelfingin, París | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Carlo Buonaparte | |||
Móðir | Letizia Ramolino | |||
Eiginkona | Elizabeth Patterson (g. 1803; skilin 1805) Katrín af Württemberg (g. 1807; d. 1835) Giustina Pecori-Suárez (g. 1840) | |||
Börn | Jérôme-Napoléon, Jérôme Napoléon Charles, Mathilde, Napoléon-Jérôme |
Jérôme fæddist undir nafninu Girolamo Napoleone de Buonaparte í Ajaccio á Korsíku og gegndi herþjónustu í franska flotanum þar til hann flutti til Bandaríkjanna. Þar giftist hann árið 1803 Bandaríkjakonunni Elizabeth Patterson, kaupmannsdóttur frá Baltimore.[2] Napóleon lét síðar ógilda hjónaband þeirra, en þau eignuðust einn son, Jérôme-Napoléon Bonaparte, sem fæddist í Camberwell í Surrey á Englandi.
Árið 1807 útnefndi Napóleon, þá orðinn Frakkakeisari, Jérôme bróður sinn konung þýska ríkisins Vestfalíu. Jérôme fluttist þangað til höfuðborgarinnar Kassel og giftist Katrínu af Württemberg. Þau eignuðust saman soninn Napoléon Joseph Charles Paul Bonaparte og dótturina Mathilde Bonaparte. Eftir að konungsríki Jérôme var leyst upp í kjölfar ósigurs Napóleons gaf tengdafaðir Jérôme, konungurinn af Württemberg, honum aðalstitillinn fursti af Montfort.
Eftir að Napóleon sagði af sér og var sendur í útlegð flutti Jérôme til Ítalíu og kvæntist í þriðja sinn, nú aðalskonunni Giustinu Pecori-Suárez. Þegar bróðursonur Jérôme, Louis-Napoléon Bonaparte, varð forseti Frakklands árið 1848 og síðan Frakkakeisari árið 1852, var Jérôme útnefndur marskálkur Frakklands, forseti franska þingsins[3] og fékk titilinn keisaralegur prins. Áður en Napóleon III fæddist sonur var Jérôme einnig um hríð erfingi að frönsku keisarakrúninni.
Núverandi meðlimir Bonaparte-ættar sem gera tilkall til frönsku keisarakrúnunnar eru afkomendur Jérôme þar sem hvorki Napóleon I né Napóleon III eiga skilgetna afkomendur á lífi.[4]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.