![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d1/GimanHallJHUByJfruh.jpg/640px-GimanHallJHUByJfruh.jpg&w=640&q=50)
Johns Hopkins-háskóli
From Wikipedia, the free encyclopedia
Johns Hopkins-háskóli (enska Johns Hopkins University) er einkarekinn rannsóknarháskóli í Baltimore í Maryland í Bandaríkjunum. Johns Hopkins var stofnaður árið 1876 og var fyrsti háskólinn í Bandaríkjunum sem tók sér þýska rannsóknarháskóla sem fyrirmynd og lagði megináherslu á rannsóknir. Skólinn er einkum rómaður fyrir læknaskóla sinn.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d1/GimanHallJHUByJfruh.jpg/640px-GimanHallJHUByJfruh.jpg)
Skólinn er nefndur eftir Johns Hopkins, sem lagði 7 milljónir bandaríkjadala til stofnunar skólans í erfðaskrá sinni árið 1873. Einkunnarorð skólans eru Veritas vos liberabit („Sannleikurinn mun frelsa ykkur“).