John Cleese
From Wikipedia, the free encyclopedia
John Marwood Cleese (fæddur 27. október 1939) er enskur leikari, grínisti, höfundur og kvikmyndaframleiðandi. Cleese er þekktastur fyrir að hafa verið meðlimur Monty Python-grínhópsins og fyrir gamanþættina Fawlty Towers, sem hann skrifaði og lék í ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Connie Booth.
Staðreyndir strax Upplýsingar, Fæddur ...
John Cleese | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | John Marwood Cleese 27. október 1939 (1939-10-27) (84 ára) Weston-super-Mare, Norður-Somerset á Englandi |
Ár virkur | 1961 – nú |
Maki | Connie Booth |
Vefsíða | www.thejohncleese.com |
Loka
Meðal kvikmynda sem Cleese hefur leikið í má nefna A Fish Called Wanda, Fierce Creatures, Clockwise, tvær James Bond-myndir sem Q, tvær myndir um Harry Potter og þrjár um Shrek.
Cleese lék í auglýsingum fyrir Kaupþing-banka og kom fram í Hörpu árið 2018 í uppistandinu Last Time to See Me Before I Die.