João Havelange
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jean-Marie Faustin Godefroid "João" de Havelange (8. maí 1916 – 16. ágúst 2016) var brasilískur lögfræðingur, kaupsýslumaður og íþróttafrömuður. Hann stýrði Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA, í 24 ár. Hann er sá einstaklingur sem lengst hefur gegnt embættinu að Jules Rimet einum frátöldum. Havelange átti jafnframt sæti í stjórn Alþjóðaólympíunefndarinnar frá 1961 til 2011. Fáir menn hafa haft jafnmikil áhrif á þróun stórmóta í íþróttum og hinnar alþjóðlegu íþróttahreyfingar. Í seinni tíð hefur orðspor hans þó beðið nokkurn hnekki vegna umræðna um spillingu innan FIFA í tengslum við Heimsmeistarakeppnina.
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
João Havelange | |
---|---|
Fæddur | 8. maí 1916 Rio de Janeiro, Brasilíu |
Dáinn | 16. ágúst 2016 (100 ára) Rio de Janeiro |
Þjóðerni | Brasilískur |
Störf | Íþróttaforkólfur |
Þekktur fyrir | að vera forseti FIFA um langt árabil |
Loka