![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/50/Jinan-location-MAP-in-Shandong-Province-China.jpg/640px-Jinan-location-MAP-in-Shandong-Province-China.jpg&w=640&q=50)
Jinan
höfuðborg Shandong héraðs í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jinan borg (einnig nefnd Tsinan) (kínverska: 济南; rómönskun: Jǐnán) er höfuðborg Shandong héraðs í austurhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Borgin er á landsvæði sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki allt frá upphafi siðmenningar í Kína og hefur þróast í að verða stór stjórnsýslu-, efnahags- og samgöngumiðstöð. Jinan liggur við norðanverðar fjallsrætur Massifjallsins, rétt sunnan Gulafljóts sem skapar helstu samgönguleiðina meðfram norðurhlið Shandong-hæða.
![Mynd sem sýnir skýjakljúfa Jinan borgar í Shandong héraði.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e1/Jinanfromqianfoshan.jpg/640px-Jinanfromqianfoshan.jpg)
![Landakort sem sýnir legu Jinan borgar í Shandong héraði í austurhluta Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/50/Jinan-location-MAP-in-Shandong-Province-China.jpg/640px-Jinan-location-MAP-in-Shandong-Province-China.jpg)
Nafn Jinan borgar þýðir „Suður af ánni Ji“ er það var á í norðaustur Shandong . Sú á hvarf í miklum flóðum Gulafljóts árið1852, þegar fljótið færðist til frá neðanverðum Shandong skaga til norðurs, og rann inn í árfarveg Ji.
Það landsvæði sem borgin er byggð á nýtur náttúrulegra uppspretta og byggðist snemma. Á 8. öld f.Kr. var þar borgin Lixia, sem var borg Qi-ríkis, sem blómstraði á tíma Zhou-veldisins (1046–256 f.Kr.).
Árið 2020 þegar síðasta manntal var gert í Kína, var íbúafjöldi borgarkjarna Jinan 5.648.162 en íbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 9.202.432.
![Mynd sem sýnir Maitreya vináttugarðinn Kína og Japan á austurhluta „Þúsund Búdda fjall“ við Jinan borg.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1a/Qianfoshanpark.jpg/640px-Qianfoshanpark.jpg)
![Gervihnattamynd af Jinan borg og nágrenni.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c7/Jinan_117.02265E_36.67601N.jpg/640px-Jinan_117.02265E_36.67601N.jpg)
![Mynd frá háskólasvæði Shandong háskóla í Jinan borg.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/85/Shandong_university_central_campus_south_gate_2012_03.jpg/640px-Shandong_university_central_campus_south_gate_2012_03.jpg)