![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/27/Jiangnan.png/640px-Jiangnan.png&w=640&q=50)
Jiangnan
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jiangnan eða Jiang Nan (kínverska:南|南; rómönskun: Jiāngnán; (Chiang-nan) áður kallað Kiang-nan) sem þýðir „sunnan fljótsins“, í merkingunni „sunnan Jangtse fljóts“; er landsvæði á austurströnd Alþýðulýðveldisins Kína.
![Kort af umfangi Jiangnan eftir ólíkum skilgreiningum.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/27/Jiangnan.png/640px-Jiangnan.png)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f5/Humble_Administrator%27s_Garden1.jpg/640px-Humble_Administrator%27s_Garden1.jpg)
![Óshólmasvæði Jangtse nálægt Sjanhæ borg séð utan úr geimnum.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/75/%E0%B8%94%E0%B8%B4%E0%B8%99%E0%B8%94%E0%B8%AD%E0%B8%99%E0%B8%9B%E0%B8%B2%E0%B8%81%E0%B9%81%E0%B8%A1%E0%B9%88%E0%B8%99%E0%B9%89%E0%B8%B3%E0%B9%81%E0%B8%A2%E0%B8%87%E0%B8%8B%E0%B8%B5.jpg/320px-%E0%B8%94%E0%B8%B4%E0%B8%99%E0%B8%94%E0%B8%AD%E0%B8%99%E0%B8%9B%E0%B8%B2%E0%B8%81%E0%B9%81%E0%B8%A1%E0%B9%88%E0%B8%99%E0%B9%89%E0%B8%B3%E0%B9%81%E0%B8%A2%E0%B8%87%E0%B8%8B%E0%B8%B5.jpg)
![„Vatns- og bambushúsið“, eitt af meistaraverkum Ni Zan (1301-1374) listamanns frá Jiangnan. Hann var fæddur í Wuxi,(nú Jiangsu hérað).](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/28/Ni_Zan_Water_and_Bamboo_Dwelling.jpg/640px-Ni_Zan_Water_and_Bamboo_Dwelling.jpg)
Jiangnan vísar til landsvæðis rétt sunnan við neðri hluta Jangtse-fljóts, þar á meðal suðurhluta óshólma þess. Það afmarkast af Gulahafi í austri, Sjanghæ borghéraði í suðaustri og af héruðum Zhejiang í suðri, Anhui í vestri og Shandong í norðri.
Jiangnan hefur lengi verið eitt af velmegandi landsvæðum Kína vegna mikils mannfjölda og auðs frá viðskiptum.