Jean-Jacques Rousseau
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jean-Jacques Rousseau (28. júní 1712 – 2. júlí 1778) var fransk-svissneskur heimspekingur á upplýsingaöldinni. Stjórnmálaviðhorf hans höfðu meðal annars áhrif á frönsku byltinguna, tilurð sósíalisma og þjóðernishyggju.
Staðreyndir strax Vestræn heimspeki Heimspeki 18. aldar (Nýaldarheimspeki), Nafn: ...
Vestræn heimspeki Heimspeki 18. aldar | |
---|---|
Nafn: | Jean-Jacques Rousseau |
Fæddur: | 28. júní 1712 (í Genf í Sviss) |
Látinn: | 2. júlí 1778 (66 ára) (í Ermenonville í Frakklandi) |
Skóli/hefð: | Upplýsingin |
Helstu ritverk: | Orðræða um uppruna og grundvöll ójöfnuðar meðal manna, Orðræða um stjórnmál, Samfélagssáttmálinn, Emile, Játningar Jean-Jacques Rousseau |
Helstu viðfangsefni: | stjórnspeki, uppeldisfræði |
Markverðar hugmyndir: | samfélagssáttmálinn |
Hafði áhrif á: | Immanuel Kant |
Loka
Ef til vill ber fræg tilvitnun í bók hans, Samfélagssáttmálann, best vitni um arfleifð hans sem róttæks byltingarmanns: „Maðurinn fæðist frjáls en er hvarvetna í hlekkjum“.