![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f8/Trifoliumsubterraneum.jpg/640px-Trifoliumsubterraneum.jpg&w=640&q=50)
Jarðsmári
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jarðsmári, eða Trifolium subterraneum[2][3] [4] [5] [6] [7] [8] [9] [10] [11] [12] [13] er einær smári ættaður frá vestur Evrópu , frá Írlandi austur til Belgíu. Nafn tegundarinnar kemur frá sérstæðri frædreifingu hans (geocarpy), sem ekki sést hjá öðrum smárum.
Jarðsmári | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() | ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Trifolium subterraneum L. | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Calycomorphum subterraneum (Linné)C.Presl |
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/49/Trifolium_subterraneum_MHNT.BOT.2015.34.91.jpg/640px-Trifolium_subterraneum_MHNT.BOT.2015.34.91.jpg)
Hann þrífst í lélegum jarðvegi sem aðrir smárar geta jafnvel ekki lifað í, og er ræktaður sem skepnufóður. Það eru þrjár aðskildar undirtegundir notaðar í landbúnaði, hvert með eigið kjör loftslag og jarðvegs gerð, sem eykur útbreiðslumöguleika tegundarinnar í mismunandi umhverfi.
- T. subterraneum subsp. subterraneum er ósérhæfðasta undirtegundin, og hægt að rækta hann í fjölbreytilegustu umhverfi.
- T. subterraneum subsp. yanninicum er ræktaður á rökum svæðum sem hættir við að flæða yfir.
- T. subterraneum subsp. brachycalycinum er viðkvæmari, þarfnast þurrs, sprungins jarðvegs til að spíra.
Sumir systematists líta á þessar þrjár undirtegundir sem sjálfstæðar tegundir. Það eru mörg afbrigði til af tegundinni, en fá þeirra eru í almennri notkun. Sú tækni að blanda þessum þremur undirtegundum saman á akrinum er vinsæl vegna þess að hún tryggir þétta uppskeru. Einnig, er honum stundum blandað við refasmára til að fá langlífara beitarland.
Jarðsmári er sjálffrjóvgandi, ólíkt flestum beitarplöntum af ertublómaætt eins og refasmára og öðrum smárum, sem eru frjóvguð af skordýrum, sérstaklega býflugum. Blóm jarðsmára eru yfirleitt staðsett undir blöðunum og eru með lítinn blómasafa, sem gerir þau óaðgengileg og ólystug fyrir býflugur. Þetta gerir hann líka minna aðlaðandi fyrir vissar skordýraplágur.
Jarðsmári er einn af algengustu fóðurjurtum í Ástralíu.[14] Hann er einnig ræktaður í Kaliforníu og Texas, þar sem mikill munur á jarðvegsgerð og gæðum, úrkomu, og hita gerir jarðsmára sérstaklega nytsaman.