![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Jan_Vermeer_van_Delft_021.jpg/640px-Jan_Vermeer_van_Delft_021.jpg&w=640&q=50)
Johannes Vermeer
From Wikipedia, the free encyclopedia
Johannes Vermeer eða Jan Vermeer (skírður 31. október 1632 — 15. desember 1675) var hollenskur listmálari sem fékkst einkum við myndir af borgaralegu lífi innan veggja heimilisins. Hann bjó alla ævi í borginni Delft og gekk nokkuð vel í sinni grein en varð aldrei sérlega frægur. 1866 gaf listfræðingurinn Thoré Burger út ritgerð þar sem hann eignaði Vermeer 60 verk (34 eru örugglega eignuð honum í dag) og frá þeim tíma hefur frægð Vermeers vaxið gríðarlega og hann er nú talinn einn af bestu málurunum á gullöld Hollands.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Jan_Vermeer_van_Delft_021.jpg/640px-Jan_Vermeer_van_Delft_021.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Johannes Vermeer.