úkraínsk söngkona From Wikipedia, the free encyclopedia
Súsana Alímívna Dzjamaladínova[lower-alpha 1] (f. 27. ágúst 1983), betur þekkt undir sviðsnafninu Jamala[lower-alpha 2], er úkraínsk söngkona, leikkona og lagahöfundur. Hún tók þátt í og sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2016 fyrir Úkraínu með laginu „1944“. Árin 2017, 2018 og 2019 var hún í dómnefnd Vidbir, undankeppni Eurovision í Úkraínu.
Jamala | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Susana Alimivna Jamaladinova (Susana Alim qızı Camaladinova) 27. ágúst 1983 |
Uppruni | Osh, kirgíska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Kirgistan) |
Ár virk | 2001–núverandi |
Stefnur | raf, þjóðlaga, sálar, blús, popptónlist |
Útgáfufyrirtæki | Moon, Enjoy! Records, Universal |
Jamala er Krímtatari og í laginu „1944“ fjallaði hún um nauðungarflutninga Krímtarara frá Krímskaga sem skipaðir voru af stjórn Stalíns árið 1944. Lagið olli nokkrum deilum þar sem Rússar töldu það vera dæmi um pólitískan áróður sem samræmdist ekki reglum Eurovision. Lagið var víða talið fela í sér gagnrýni á nýafstaðna atburði, nánar tiltekið innlimun Rússa á Krímskaga árið 2014.[1]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.