Jair Bolsonaro
38. forseti Brasilíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jair Messias Bolsonaro (f. 21. mars 1955) er brasilískur stjórnmálamaður sem er 38. og fyrrverandi forseti Brasilíu. Bolsonaro gegndi forsetaembættinu frá 2019 til 2023.
Staðreyndir strax Forseti Brasilíu, Varaforseti ...
Jair Bolsonaro | |
---|---|
Forseti Brasilíu | |
Í embætti 1. janúar 2019 – 1. janúar 2023 | |
Varaforseti | Hamilton Mourão |
Forveri | Michel Temer |
Eftirmaður | Luiz Inácio Lula da Silva |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. mars 1955 (1955-03-21) (69 ára) Glicério í São Paulo-fylki, Brasilíu |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi flokkurinn (2021–) |
Maki | Rogéria Nantes Braga (g. 1978; sk. 1997) Ana Cristina Valle (g. 1997; sk. 2007) Michelle Reinaldo (g. 2013) |
Trúarbrögð | Mótmælandi |
Starf | Hermaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka
Hann hafði áður setið á fulltrúadeild brasilíska þingsins fyrir Rio de Janeiro-fylki frá árinu 1991. Bolsonaro var kjörinn forseti sem meðlimur í Félagslega frjálslynda flokknum (p. Partido Social Liberal eða PSL) en í nóvember árið 2019 klauf Bolsonaro sig úr flokknum og stofnaði nýjan stjórnmálaflokk, Bandalag fyrir Brasilíu (p. Aliança pelo Brasil). Árið 2021 gekk Bolsonaro í brasilíska Frjálslynda flokkinn.