Hymir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hymir er jötunn í norrænni goðafræði. Í Hymiskviðu er Hymir sagður faðir Týs,[1] en í Skáldskaparmálum er Óðinn sagður faðir Týs.[2]
Hymiskviða fjallar um þegar Æsir ætluðu að halda veislu og þyrftu svo stóran ketil að eingöngu fengist hjá Hymi. Fóru Þór og Týr og áttu róstursama ferð með veiði á Miðgarðsormi meðal ævintýra, en fengu ketilinn. Á leiðinni til baka er svo stoppað hjá jötninum Egli og börn hans, Þjálfi og Röskva hans tekin sem þjónustufólk.[3]
Styttri útgáfa af ævintýrinu er í Gylfaginningu.[4]