![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fa/World_map_with_tropic_of_capricorn.svg/langis-640px-World_map_with_tropic_of_capricorn.svg.png&w=640&q=50)
Hvarfbaugur syðri
syðsta breiddargráða jarðar þar sem sólin getur verið beint yfir / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvarfbaugur syðri, sem einnig er nefndur Steingeitarbaugur, er syðsta breiddargráða jarðar þar sem sólin getur verið beint yfir.
![Heimskort er sýnir hvar hvarfbaugur syðri liggur.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fa/World_map_with_tropic_of_capricorn.svg/640px-World_map_with_tropic_of_capricorn.svg.png)
![Vegaskilti sem sýnir mörk hvarfbaugs syrðri í Vestur-Ástralíu.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/84/Tropic_of_capricorn_Australia.jpg/640px-Tropic_of_capricorn_Australia.jpg)
![Mynd (með enskum texta) er skýrir tengsl halli jarðmönduls við hvarfbaugana og heimskautabaugana.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/40/Axial_tilt_vs_tropical_and_polar_circles.svg/320px-Axial_tilt_vs_tropical_and_polar_circles.svg.png)
Þetta gerist á vetrarsólstöðum, þegar suðurhvel jarðar hallar að sólu að hámarki og sólargangurinn er lengstur. Það nær einnig 90 gráðum undir sjóndeildarhringinn á miðnætti sólar á sumarsólstöðum, þegar sólargangurinn er stystur.
Þegar sólin er hæst á lofti á jafndægri á hausti og vori stendur sólin í hvirfilpunkti á miðbaug. Þá er hún á miðjum himni og skín beint ofan á hvirfilinn þannig að hvergi er skugga að sjá. Vegna halla jarðmöndulsins um 23,5° er sól í hvirfilpunkti á mismunandi um breiddargráðum eftir því hvenær ársins er.
Jafngildi hvarfbaugs syðri á norðuhveli er hvarfbaugur nyrðri (Krabbabaugur).
Hvarfbaugur syðri er einn af fimm helstu breiddargráðum sem eru merktir á kortum af jörðinni. Breidd hennar er eins og er 23°26′10,9″ (eða 23,43636°) sunnan miðbaugs, en hún færist mjög smám saman norður á bóginn.