![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8c/Hofsj%25C3%25B6kull.jpeg/640px-Hofsj%25C3%25B6kull.jpeg&w=640&q=50)
Hofsjökull
From Wikipedia, the free encyclopedia
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8c/Hofsj%C3%B6kull.jpeg/320px-Hofsj%C3%B6kull.jpeg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b0/Arnarfellsj%C3%B6kull_from_the_North._H%C3%B3p._%284558285519%29.jpg/640px-Arnarfellsj%C3%B6kull_from_the_North._H%C3%B3p._%284558285519%29.jpg)
- Hofsjökull getur einnig átt við Hofsjökul eystri
Hofsjökull er þíðjökull á miðhálendi Íslands sem liggur á milli Langjökuls til vesturs og Vatnajökuls til austurs, hann er 925 km² að flatarmáli og 1.765 m hár þar sem hann er hæstur. Hann er þriðji stærsti jökull landsins á eftir Langjökli og Vatnajökli. Hann var áður kenndur við Arnarfell hið mikla og hét þá Arnarfellsjökull en nafni hans var síðan breytt og er hann nú kenndur við Hof í Vesturdal í Skagafirði.