Hjarta- og æðasjúkdómar
Flokkur sjúkdóma sem tengjast hjartanu eða æðakerfinu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hjarta og æðasjúkdómar eru flokkur sjúkdóma sem tengjast hjartanu eða æðakerfinu. Þar á meðal eru hjartaáfall, kransæðasjúkdómar, hjartabilun, heilablóðfall, hjartagallar, sjúkdómar í hjartavöðvanum, æðakölkun, blóðtappi, háþrýstingur og hjartsláttartruflanir.
Mataræði er áhættuþáttur sem tengist 53% dauðfalla í hjarta og æðasjúkdómum. Aðrir áhættuþættir í lífstíl eru m.a. hreyfingarleysi, reykingar og áfengisdrykkja.