![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e5/Hefei-location-MAP-in-Anhui-Province-China.jpg/640px-Hefei-location-MAP-in-Anhui-Province-China.jpg&w=640&q=50)
Hefei
höfuðborg og fjölmennasta borg Anhui héraðs í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hefei (kínverska: 合肥; rómönskun: Héféi; Ho-fei), er höfuðborg og fjölmennasta borg Anhui héraðs í Alþýðulýðveldinu Kína. Hún er stjórnsýslu-, efnahags- og menningarmiðstöð héraðsins. Borgin er staðsett norður af Chaohu vatni, við norðausturrætur Dabie-fjalla, sem mynda skil á milli fljótanna Huai og Jangtse. Hefei, sem er þekkt sem borg vísinda, fræða og nýsköpunar, hefur vaxið gríðarlega og er í dag þróuð og blómleg borg.
![Mynd af skrifstofubyggingum við Svanavatn í Hefei borg.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/5d/%E5%AE%89%E5%BE%BD%E5%90%88%E8%82%A5%E5%A4%A9%E9%B9%85%E6%B9%96.jpg/640px-%E5%AE%89%E5%BE%BD%E5%90%88%E8%82%A5%E5%A4%A9%E9%B9%85%E6%B9%96.jpg)
![Staðsetning Hefei borgar í Anhui héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e5/Hefei-location-MAP-in-Anhui-Province-China.jpg/640px-Hefei-location-MAP-in-Anhui-Province-China.jpg)
![Mynd af Musteri Chenghuangshen í Hefei. Chenghuangshen er samkvæmt kínverskri þjóðtrú bæjar-eða borgarguð. Slík musteri eru víða í borgum Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c4/Hefei_Chenghuang_Temple.jpg/640px-Hefei_Chenghuang_Temple.jpg)
Árið 2020 þegar síðasta manntal var gert í Kína, var íbúafjöldi borgarkjarna Hefei 5.056.000 en íbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 9.369.881.