Heartstopper (myndasögur)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Heartstopper er LGBTQ+ teiknimynda- og vefteiknimyndasería sem er skrifuð og teiknuð af breska rithöfundinum Alice Oseman. Sagan fjallar um líf Charlie Spring og Nick Nelson frá því að þeir hittast fyrst og verða síðar ástfangnir. Myndaserían er samin út frá fyrri skáldsögu Oseman, Nick and Charlie frá 2015, en persónurnar birtust hinsvegar fyrst í bókinni Solitaire frá 2014.
Staðreyndir strax Útgefandi, Útgáfuár ...
Heartstopper | |
---|---|
Útgefandi |
|
Útgáfuár |
|
Höfundar | |
Handritshöfundar | Alice Oseman |
Loka
Árið 2022 var samnefndum sjónvarpsþáttum streymt á Netflix. Þættirnir eru einnig skrifaðir af Alice Oseman og með aðalhlutverk fara Joe Locke (Charlie) og Kit Connor (Nick).
Þættirnir hafa fengið gríðarlega góð viðbrögð frá gagnrýnendum og hlotið fjölda verðlauna. Nú þegar hafa komið úr tvær seríur og sú þriðja er væntanleg 2024.