![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2a/Lspn_comet_halley.jpg/640px-Lspn_comet_halley.jpg&w=640&q=50)
Halastjarna Halleys
From Wikipedia, the free encyclopedia
Halastjarna Halleys (oftast kölluð Halley) er þekkt halastjarna, kennd við enska stjörnufræðinginn sir Edmond Halley (1656-1742), sem fylgdist með henni þegar hún var í sólnánd árið 1682. Hún gengur á ílangri braut um sólu sem nær út fyrir braut Neptúnusar og inn fyrir braut Venusar með umferðartímann um 76 ár. Síðast kom Halley í sólnánd og varð sýnileg með berum augum frá jörðu árið 1986. Edmund Halley veitti því athygli að halastjarna með áþekka braut virtist hafa birst nokkuð reglulega á um 76 ára fresti, sem sé 1531, 1607 og 1682. Halley taldi að um sömu halastjörnu gæti verið að ræða og spáði endurkomu hennar árið 1758, sem gekk eftir.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/36/Tapestry_of_bayeux10.jpg/200px-Tapestry_of_bayeux10.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2a/Lspn_comet_halley.jpg/640px-Lspn_comet_halley.jpg)