Haikou Meilan-alþjóðaflugvöllurinn
alþjóðaflugvöllur í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðaflugvöllur Haikou Meilan (IATA: HAK, ICAO: ZJHK) (kínverska: 海口美兰国际机场; rómönskun: Hǎikǒu Měilán Guójì Jīchǎng) er flughöfn Haikou höfuðborgar Hainan héraðsins í Alþýðulýðveldinu Kína. Hann þjónar sem mikilvæg samgöngumiðstöð fyrir borgina og Hainan eyju. Hann er einn fjölfarnasti flugvöllur Kína. Flugvöllurinn er staðsettur um 25 kílómetra suðaustur af miðborg Haikou, í bænum Lingshaní Meilan sýslu, sem gefur honum nafn. Árið 2018 fóru um 24.1 milljónir farþega um tvær farþegamiðstöðvar flugvallarins og 170 þúsund tonn af farmi.