![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2f/Hvammstangi.jpg/640px-Hvammstangi.jpg&w=640&q=50)
Húnaþing vestra
sveitarfélag við Húnaflóa, Norðurlandi vestra, Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Húnaþing vestra er sveitarfélag við Húnaflóa. Það var stofnað 7. júní 1998 við sameiningu allra hinna 7 gömlu hreppa Vestur-Húnavatnssýslu. Þeir voru: Staðarhreppur, Fremri-Torfustaðahreppur, Ytri-Torfustaðahreppur, Kirkjuhvammshreppur, Hvammstangahreppur, Þverárhreppur og Þorkelshólshreppur. Hinn 1. janúar 2012 sameinaðist sveitarfélagið Bæjarhreppi en hefur áfram nafnið Húnaþing vestra.
Húnaþing vestra | |
---|---|
![]() Hvammstangi | |
![]() Staðsetning Húnaþings vestra | |
Hnit: 65.397°N 20.942°V / 65.397; -20.942 | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | |
Stjórnarfar | |
• Sveitarstjóri | Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 3.023 km2 |
• Sæti | 11. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 1.212 |
• Sæti | 34. sæti |
• Þéttleiki | 0,4/km2 |
Póstnúmer | 500, 530, 531 |
Sveitarfélagsnúmer | 5508 |
Vefsíða | hunathing |
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Húnaþing vestra einkennist af fjörðunum þremur; Hrútafirði og Miðfirði, sem eftir sameininguna við Bæjarhrepp eru báðir að öllu leyti í Húnaþingi vestra, og Húnafirði, en vesturhluti hans er í sveitarfélaginu. Á milli þeirra eru nesin Heggstaðanes og Vatnsnes. Helsti þéttbýlisstaður sveitarfélagsins er Hvammstangi en smáþorp eða vísi að þorpum er einnig að finna á Laugabakka, Reykjum í Hrútafirði og á Borðeyri.
Aðalatvinnuvegir svæðisins er landbúnaður og sjávarútvegur.