From Wikipedia, the free encyclopedia
Höfði er bær á Höfðaströnd í austanverðum Skagafirði, landnámsjörð Höfða-Þórðar Bjarnarsonar og áður kirkjustaður. Höfði er norðan við Höfðavatn, í hvammi suðvestan undir Höfðahólum, sem eru framhlaup úr fjallinu fyrir ofan.
Höfði var ysti bær í Höfðahreppi hinum forna en þar utan við tók Fellshreppur við. Hálfur Þórðarhöfði tilheyrir Höfða en hinn helmingurinn Bæ. Höfði á einnig Höfðamöl milli Höfðavatns og sjávar og hlutdeild og veiðirétt í Höfðavatni.
Kirkja sem verið hafði á Höfða frá fornu fari var lögð af 1891.
Höfði kemur mjög við sögu í kvikmyndinni Bíódagar eftir Friðrik Þór Friðriksson. Friðrik er ættaður frá Höfða og þar var upphafsatriðið í kvikmynd hans Börn náttúrunnar einnig tekið upp.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.