![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/dd/Kong_G%25C3%25B8trik_den_Gavmilde.jpg/640px-Kong_G%25C3%25B8trik_den_Gavmilde.jpg&w=640&q=50)
Guðröður Danakonungur
Danakonunugur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Guðröður (danska: Godfred eða Gøtrik; latína: Godofridus) var hugsanlega Danakonungur frá um það bil 804 til 810. Hann er sá fyrsti sem til eru samtímaheimildir um. Hann barðist gegn Karlungaveldi í tíma Karlamagnúsar, en var myrtur af samlanda sínum áður en stór átök áttu sér stað. Engar áreiðanlegar frásagnir eru um Guðröð í norrænum heimildum. Saxi málspaki nefnir hann sem „Gotricus“ eða „Gøtrik“ í Gesta Danorum, en saga hans um erfingja Guðröðar samræmist ekki frankverskum samtímaheimildum. Faðir hans er óþekktur, en hann var sennilega skyldur Sigfreð sem var sagnkonungur Dana á undan honum.[1] Guðröður var föðurbróðir Hemmings Danakonungs (ríkti 810 til 812) sem samdi frið við Karlamagnús, og faðir Háreks fyrsta Danakonungs (ríkti 813 til 854).
![]() |
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: Bara eitt atriði: Hugsanlega konungur? |