Grindadráp
From Wikipedia, the free encyclopedia
Grindadráp er veiðiaðferð sem beitt er við veiðar á grindhvölum (marsvínum) í Færeyjum. Flestir Færeyingar telja grindadráp mikilvægan hluta af menningu sinni. Þessi veiðiaðferð hefur verið notuð að minnsta kosti frá 11. öld. Hvalveiðiráð Færeyinga hefur eftirlit með veiðunum en ekki Alþjóðahvalveiðiráðið. Um 950 grindhvalir eru veiddir árlega, aðallega að sumarlagi. Veiðarnar sem kallast á færeysku grindadráp eru ekki gerðar til að selja hvalaafurðir heldur eru skipulagðar þannig að allir geta tekið þátt. Dýraverndunarsinnar hafa gagnrýnt veiðarnar og segja þær grimmúðugar og ónauðsynlegar.