![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bc/Golden_Globe_Awards_signs.jpg/640px-Golden_Globe_Awards_signs.jpg&w=640&q=50)
Golden Globe-verðlaunin
árleg verðlaun fyrir kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð / From Wikipedia, the free encyclopedia
Golden Globe-verðlaunin eru verðlaun sem veitt eru af samtökunum Hollywood Foreign Press Association fyrir kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð bæði í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Fyrsta verðlaunaafhendingin var haldin í janúar 1944 í myndverum 20th Century Fox í Los Angeles.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bc/Golden_Globe_Awards_signs.jpg/640px-Golden_Globe_Awards_signs.jpg)
Golden Globe-verðlaunaafhendingunni er sjónvarpað í yfir 150 löndum. Hún er þriðja vinsælasta verðlaunaathöfnin á eftir Óskars og Grammy-verðlaununum.