Glasgow Celtic
From Wikipedia, the free encyclopedia
Celtic Football Club er skoskt félag, sem að spilar heimaleiki sína í Parkhead hverfinu í Glasgow, félagið leikur í Skosku úrvalsdeildinni. Félagið var stofnað árið 1887 og lék sinn fyrsta opinbera knattleik árið 1888. Celtic hefur orðið skoskur meistari 53 sinnum síðast árið 2023. Heimavöllur Keltanna heitir Celtic Park og er stærsti knattspyrnu leikvangur Skotlands og tekur um það bil 60 þúsund áhofendur í sæti. Helstu erkifjendur Celtic eru Glasgow Rangers.
The Celtic Football Club | |||
Fullt nafn | The Celtic Football Club | ||
Gælunafn/nöfn | The Celts (Keltarnir), The Bhoys | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Celtic | ||
Stofnað | 1888 | ||
Leikvöllur | Celtic Park Glasgow | ||
Stærð | 60.832 sæti | ||
Stjórnarformaður | Ian Bankier | ||
Knattspyrnustjóri | Brendan Rogers | ||
Deild | Skoska úrvalsdeildin | ||
2023/24 | 1. sæti | ||
|
Eftir að hafa komist í úrslitaleik evrópukeppni bikarhafa árið 1967, tókst félaginu einnig að verða fyrsta breska félagið til að ná þeim árangri. Árið 2003 komst félagið í úrslitaleik UEFA bikarsins þar sem þeir töuðu fyrir portúgalska félaginu FC Porto leikurinn var spilaður í Sevilla á Spáni og rúmlega 80 þúsund manns mættu til að styðja sína menn. Nokkrir Íslendingar hafa leikið með félaginu, Jóhannes Eðvaldsson er þeirra þekktastur. Meðal erlendra þekktra leikmanna eru Virgil van Dijk og Teemu Pukki.
Celtic mætti KR í forkeppni Meistaradeildar Evrópu árin 2014 og 2020.